Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Færslur: 2012 Júlí

26.07.2012 16:22

Eru eldri borgarar óvitar?

Vasklegir eldri borgarar

Það er furðulega sterk hneigð í íslensku samfélagi að líta á gamalt fólk nánast sem óvita sem þurfi að hafa stöðuga gát á svo þeir fari sér ekki að vo...

Það er furðulega sterk hneigð í íslensku samfélagi að líta á gamalt fólk nánast sem óvita sem þurfi að hafa stöðuga gát á svo þeir fari sér ekki að voða. Þannig finnast einstaklingar sem skotra stöðugt áhyggjuaugum til gamla fólksins og telja brýnt að hafa vit fyrir því og helst geyma það á stofnun þar sem ekkert ónæði stafi af því. Nú er samt svo að gamalt fólk hefur yfirleitt sjálfstæðan vilja og á ekki í erfiðleikum með að mynda sér skoðanir. Það þarf ekki stöðugt að taka ákvarðanir fyrir þetta fólk eins og það sé ómálga börn heldur á það, eins og aðrir fullorðnir, rétt á því að velja úr sem flestum möguleikum. Ellin á ekki að verða til þess að fólk sé sett á geymslustað þar sem er komið fram við það eins og það sé úr sér gengið eintak af manneskju sem sé búin að glata öllum sjálfstæðum vilja og því þurfi að hugsa fyrir hana. Eins og aðrir þarf gamalt fólk hæfilegan frið til að fá að vera það sjálft.

Nú eru deilur um það hvort rétt sé að heimila sölu á áfengi á veitingastað á Hrafnistu. Það er alveg dæmigert fyrir íslenska umræðu að hópur manna skuli rísa upp vegna þessarar hugmyndar og góla af angist yfir því að gömlu fólki verði heimilað að kaupa sér rauðvínsglas á veitingastað á dvalarheimilinu þar sem það býr. Þessi vælandi hópur, sem segist bera hagsmuni eldri borgara fyrir brjósti, dregur síðan upp hrollvekjandi mynd af útúrdrukknum og afvelta gamlingjum skapandi alls kyns vandræði á viðkomandi dvalarheimili. Semsagt: allsherjar sukk og svínarí.

Það var leitt að sjá forstjóra Hrafnistu viðurkenna í kvöldfréttum sjónvarps að hann hefði að sumu leyti fengið bakþanka vegna harðrar gagnrýni á fyrirhugaða vínsölu til vistmanna. Svo virðist sem alls kyns þrýstihópar geti haldið fram hvaða vitleysu sem er og haft áhrif vegna þess að of margir þola ekki gagnrýni og hætta jafnvel við ágætar fyrirætlanir sínar af því öðrum líkar þær ekki. Bulli á annaðhvort að svara fullum hálsi eða láta eins og maður viti ekki af því. Síst af öllu eiga menn að láta kverúlanta ráða för. Það var því hressandi að heyra þetta sama kvöld í tveimur eldri borgurum sem hafa fengið nóg af bullinu og mótmæla því kröftuglega. Á skjáinn birtist eldri kona, vistmaður á Hrafnistu, greinilega mikill kvenskörungur, sem mislíkaði að talað væri til eldra fólks eins og stöðugt þyrfti að passa það. Hún sagðist hafa verið húsmóðir í um sjö áratugi og taldi það sjálfsagðan hlut að geta boðið gestum sínum upp á rauðvín með steikinni, eins og hún hefði gert áður í húsmóðurhlutverkinu. Annar eldri borgari, fyrrverandi sjómaður, tjáði sig svo í fréttatíma á annarri sjónvarpsstöð um bann við neftóbaki og sagðist alfarið vera á móti boðum og bönnum. Það var einkar ánægjulegt að heyra í fulltrúum gamla fólksins sem töluðu svo hressilega gegn forræðishyggjunni. Megum við sem flest verða jafn vasklegir eldri borgarar.

kolbrun@mbl.is

03.07.2012 13:40

Svíþjóð, Kópavogur, A-V og FAE

Er búin að setja inn myndir frá Svíþjóðarferðinni. Við Inga fórum og heimsóttum Valgeir, Röggu, Jóhann og Emilíu í Uppsala og enduðum með þeim í Sigtuna, sem er einn elsti bær Svíþjóðar, en þau voru að flytja þangað vegna húsnæðisleysis í Uppsala. Sigtuna er rólegur og vinalegur bær. 

Salka Dröfn Ásgeirsdóttir var í fyrirsætu stuði þegar ég kom í heimsókn að skoða nýju íbúðina þeirra í Kópavoginum áður en við fórum að hjálpa Ásu systir og fjölskyldu að flytja, en þau voru líka að flytja í Kópavoginn. Ég tók engar myndir af flutningunum en svo kíktum við Inga í Smáralind og þar hittum við Ásu með bumbuna og Gunnar Val. 

Nú er Ása ekki lengur með bumbuna og hún eignaðist litla bráðfallega stúlku þann 14. júní (á 55 ára afmælisdeginum mínum  emoticon  ) sem ég vonast til að fá að líta á á næstunni því við erum að fara á ættarmót á Hólum og í framhaldi af því förum við líklega suður á bóginn nema veður verði þeim mun betra hér norðan og austanlands. 

Við sleppum þá Stóruferð Flakkara þetta árið en það er ekki hægt að vera á mörgum stöðum í einu, sérstaklega þegar bensínið kostar alveg augun úr á ferðalögum. 

Kvenfélagið Aldan-Voröld fór í sína árlegu vorferð og eru myndir úr þeirri ferð komnar inn og einnig myndir sem Vigfús tók í ferð FAE, félags aldraðra í Eyjafirði, um sunnanverða Vestfirði.
  • 1
Flettingar í dag: 290
Gestir í dag: 119
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 235486
Samtals gestir: 26597
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:49:38

Nafn:

Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Afmælisdagur:

14. júní

Staðsetning:

Eyjafjörður

Faðir:

Þorsteinn Marinósson

Móðir:

Fjóla Kristín Jóhannsdóttir

Um:

Velkomin á síðuna mína.

Eldra efni

Tenglar