Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Færslur: 2011 Nóvember

19.11.2011 00:16

Sveitaball

Þetta hefði getað verið á Melaballi forðum daga.. 

Lögreglan frétti að menn gerðu mikið af því í þorpi einu norður í landi að aka nokkuð hressir heim af sveitakrá þorpsins. Ríkislögreglustjórinn sendi nokkra vaska menn norður á sérútbúnum bíl til svo þeir gætu nú skoðað málið. 
Þegar lögreglan mætir á staðinn er kráin sneisafull og mikill glaumur og gleði. Lögreglumennirnir bíða og kl. 00:50 kemur fyrsti gesturinn út og hann er greinilega óstöðugur á fótunum. Maðurinn slumpast inn í bifreið og ekur af stað. Maðurinn er snöggur af stað svo lögreglumennirnir ná honum ekki fyrr en þeir eru búnir að aka í 5 mínútur frá kránni.
Maðurinn er tekinn inn í bíl og yfirheyrður, hann er þvoglumæltur en þegar hann er spurður, "hvað drakkstu mikið?" Svara hann: "fimmtán glös." Maðurinn er látinn anda í tölvuna en ekkert mælist svo löggan fær grun um að maðurinn gæti hafa neytt annarra efna og fara að spyrja hann. Maðurinn neitar fyrst að svara nokkru svo þeir láta hann ganga nokkur skref og viti menn allt í einu gekk maðurinn eins og eðlilegt er. Þeir þefuðu andann úr honum, fundun enga lykt svo þeir spurðu hann: "Hvað drakkstu eiginlega?" og maðurinn sagði: "Ég drakk bara gos."
Næst var spurt: "Hvers vegna reikaðir þú svona þegar þú komst út?" Maðurinn svaraði: "Ég er tálbeitan í kvöld. Félagar mínir þurftu að komast heim."

18.11.2011 01:06

Eldri borgarar

Trúir nokkur eldri borgurum.. hljóta þeir ekki að vera elliærir?

Eldri hjón, sem voru búin að vera saman frá barnsaldri, fögnuðu demantsbrúðkaupi sínu. 

Hugsið ykkur.. eftir sextíu ára hjónaband voru þau flutt aftur í gamla hverfið sitt, héldust í hendur og gengu í átt að gamla skólanum sínum. Skólinn var ólæstur, svo þau gengu inn og fundu gamla borðið þar sem þau höfðu setið saman og Alli hafði rispað í viðinn "Ég elska þig Lóa." 

Brynvarinn bíll ók framhjá þeim á leiðinni heim og af honum féll peningasekkur sem lenti rétt við fætur þeirra. Lóa var snögg að hrifsa sekkinn, en í vafa um hvað gera skyldi, svo hún bar hann heim. Þar hvolfdu þau peningunum úr sekknum og töldu. Það reyndust vera tæpar sex milljónir króna! "Við verðum að skila þessu" sagði Alli ákafur. "Sá á fund sem finnur" sagði Lóa pollróleg, setti seðlana aftur í sekkinn og faldi hann uppi á háalofti. Tveir lögreglumenn sem fínkembdu hverfið í leit að peningunum, bönkuðu uppá daginn eftir. "Afsakið, en fann annað hvort ykkar poka sem féll af brynvörðum bíl í gær?" "Nei" svaraði Lóa og sýndi engin svipbrigði. "Hún er að ljúga.. hún faldi pokann uppi á háalofti" sagði Alli sem nötraði og skalf af stressi. "Ekki trúa honum.. þetta eru bara elliglöp hjá honum blessuðum" sagði Lóa pollróleg sem fyrr. Lögreglumennirnir sneru sér samt að Alla og tóku til við að yfirheyra hann. "Byrjaðu nú á byrjuninni og segðu okkur hvernig þetta var" sagði annar þeirra og Alli byrjaði:

"Sjáðu til, þegar við Lóa vorum að ganga heim úr skólanum í gær..."

Þá sneri löggan sér að félaga sínum og sagði: "Komdu.. við skulum drífa okkur héðan!"

  • 1
Flettingar í dag: 59
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 235255
Samtals gestir: 26500
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:28:21

Nafn:

Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Afmælisdagur:

14. júní

Staðsetning:

Eyjafjörður

Faðir:

Þorsteinn Marinósson

Móðir:

Fjóla Kristín Jóhannsdóttir

Um:

Velkomin á síðuna mína.

Eldra efni

Tenglar