Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Færslur: 2011 September

22.09.2011 12:50

Góð ráð einkaþjálfara

Viltu grennast án þess að fara í ræktina eða velta þér um of upp úr mataræðinu? Þá er einkaþjálfarinn James Duigan með svarið fyrir þig. Duigan er með þeim frægari í bransanum en meðal viðskiptavina hans eru ofurkroppurinn Elle Mcpherson og Rosie Huntington-Whiteley.

Samkvæmt nýlegri rannsókn er þetta ekki endilega spurning um hvað þú borðar heldur hvernig. Hér fyrir neðan er listi sem tekinn var saman af téðum James Duigan og næringarfræðingunum Marlyn Glenville og Kim Pearson fyrir dagblaðið Daily Mail.

Einbeittu þér að því að tyggja

Rannsóknir sýna að því lengur sem þú tyggur, því færri hitaeiningar borðar þú. Það tekur heilann tuttugu mínútur að fá skilaboðin um að maginn sé fullur. Á þessum mínútum eru því óþarfa hitaeiningar borðaðar.

Borðaðu innan klukkustundar frá því að þú vaknar

Sérfræðingar eru sammála um að morgunverðurinn sé mikilvægasta máltíð dagsins og að fólk sem borðar morgunverð sé yfirlétt grennra, léttara og sæki síður í óhollustu milli mála.

Einbeittu þér að matnum

Rannsóknir sýna að ef þú ert upptekinn við allt annað en að borða þá fær heilinn misvísandi skilaboð um það magn sem hann hefur innbyrt. Einbeittu þér því að matnum og borðaðu hægt.

Ekki ofelda matinn

Gættu þess vel að ofelda ekki matinn þar sem dýrmæt næringarefni geta skemmst.

Borðaðu fyrst ávöxt

Ávextir innihalda einfaldar sykrur sem meltast hratt. Sérfræðingar vilja meina að ef  ávaxta er neytt í lok máltíðar hægi það á meltingunni og sykrurnar staldri lengur við í meltingarkerfinu en þurfa þykir, sem er ekki gott. Muna því að borða áður en flóknari fæðu er neytt.

Ekki borða eftir klukkan átta á kvöldin

Ef að búið er að neyta góðrar fæðu með reglulegu millibili yfir daginn þarf ekki að borða eftir átta á kvöldin. Slíkt er óþarfi og fitandi.

Borðaðu minna þegar þú ert undir álagi

Þegar álagi er mikið fer orkan í allt annað en að melta mat. Því á að draga úr áti þegar stressið er mikið þar sem þú ert líklegri til að fitna við þær aðstæður.

Skerðu matinn í bita

Nýleg könnun leiddi í ljós að fólk sem sker matinn í bita borðar að meðaltali 20% færri hitaeiningar en þeir sem borða sama mat óskorinn. Er skurðurinn talinn valda því að viðkomandi er meðvitaðri um hvað hann er að borða, hversu mikið er verið að borða og meltingin fær meiri tíma til að vinna næringuna úr fæðunni.

Borðaðu oft og lítið í senn

Annars gæti líkaminn haldið að hann væri að svelta og neitað að brenna dýrmætar hitaeiningar. Án gríns. Flestir sérfræðingar eru sammála um gildi þess að borða oft og lítið í senn.

Heimild: Daily Mail 

09.09.2011 11:08

Tvíburar - þríburar - ?

Þrír menn biðu spenntir á ganginum á fæðingarheimili LSH. Læknirinn kom fram og sagði við þann fyrsta að hann hefði fengið tvíbura. Maðurinn hló og sagðist vinna hjá fyrirtæki sem héti 2 fyrir 1. Svo leið tíminn og læknirinn kom og sagði við annan manninn að það hefði fæðst þríburar. Hann hló og sagði "Það er skrítið, ég vinn hjá 3 frökkum. Þá leið yfir þann þriðja. "Hvað kom fyrir hann" spurði læknirnn? Þá svöruðu hinir tveir: "Hann vinnur hjá 10/11". 

06.09.2011 16:42

Gamla fólkið í dag.

Hvernig við förum með gamla fólkið í dag.

Lausnin:  Setjum gamla fólkið í fangelsi og glæpamenn á elliheimili!. Þá fengi gamla fólkið aðgang að baði, tölvu, sjónvarpi, líkamsrækt og gönguferðum. Allt starfsfólk talaði íslensku við það og enginn stæli frá þeim. Þeir sem vildu gætu stundað nám, smá vinnu, eða dútlað við föndur og gamla fólkið fengi greitt í stað þess að þurfa að borga háan hluta af ellilífeyrinum sínum. Bubbi Morthens og Ari Eldjárn kæmu svo til að skemmta á aðfangadag!

Glæpamennirnir fengju þá kaldan mat, engan pening, væru aleinir, starfsfólkið talaði allt að 10 ólík tungumál og enga íslensku, þeir þyrftu að slökkva ljósin kl. 20 og fengju að fara í bað einu sinni í viku. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur kæmu til að skemmta þeim á sjómannadaginn. Látið þetta ganga ef ykkur finnst að ellilífeyrisþegar eigi betra skilið! 


04.09.2011 12:38

Detox

Viltu heilsusamlega hreinsun? Þá skaltu borða þetta: 

Rauðbeður: 
Eru fullar af vítamínunum B3, B6 og C ásamt því að vera járnrík, full af magnesíum, sinki og kalki. Allt þetta stuðlar að hreinsun í líkamanum og því eru þær fullkomnar til að borða einar og sér ásamt því að auðvelt er að búa til rauðbeðusafa. 
Þari: 
Er fullur af andoxunarefnu sem auka blóðflæði og hafa góð áhrif á meltinguna.
Fíflablóm: 
Eru stúfull af næringu og vinna gegn fitumyndun. Þau eru steinefnamikil og eru frábær fyrir lifrina, hægt er að bæta fílfablómum út í hefðbundið salat. 
Flaxfræ: 
Eru rík af omegasýrum og eru góð til að setja út í heitt sítrónuvatn á morgnanna til að stuðla að góðri heilsu. 
Sítrónur: 

Hver elskar ekki sítrónur? Sítrónur eru góðar tl þess að losna við auka vökva sem sest fyrir í líkamanum og eru því einstaklega góðar þegar kemur að því að hreinsa líkamann. 
Hvítlaukur: 
Enginn ætti að detox-hreinsa líkamann án þess að nota hvítlauk að einhverju leyti. Hvítlaukurinn hefur sótthreinsandi áhrif á líkamann ásamt því að hann styrkir varnir gegn sýklum og veirum. 
Epli: 
Epli eru full af vítamínum og hafa góð áhrif á líkamann þegar hann er í hreinsun þar sem þau eru einnig næringarrík. 

Pressan.is 
  • 1
Flettingar í dag: 178
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 62
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 249586
Samtals gestir: 28525
Tölur uppfærðar: 18.1.2025 05:37:00

Nafn:

Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Afmælisdagur:

14. júní

Staðsetning:

Eyjafjörður

Faðir:

Þorsteinn Marinósson

Móðir:

Fjóla Kristín Jóhannsdóttir

Um:

Velkomin á síðuna mína.

Eldra efni

Tenglar