Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir |
|
Færslur: 2010 September28.09.2010 20:2228. sept.2010Þá er búið að þrífa hjólhýsið eftir ferðir sumarsins og fer það væntanlega í vetrarhýðið á morgun. Það verður nú að teljast til tíðinda að vera úti á stuttermabol við svoleiðis þrif 28. september, en hitinn hefur verið +10 til +16 °C síðustu daga og stendur mælirinn í 12 °C núna kl. 20:30. Ég frétti að hitinn á Öxnadalsheiði mælist +13 °C kl. 21:00. Þennan dag árið 1903 fæddist Marinó Steinn afi og 1979 fæddist barnabarn hans.. En nei... hún heitir ekki Marín Steina, heldur Fjóla Ósk. Skrifað af SigrJo 14.09.2010 12:24ÞunglyndiÉg ætla að leyfa mér að setja inn link að síðu sem ung kona, sem ég kannaðist við (en þó kynntist ég meira foreldrum hennar árin áður en þau skildu), skrifar um lífsreynslu sína. http://nurseimba.posterous.com/ Ég hef sjálf kynnst þunglyndi og barðist við það í nokkur ár og ég veit að ég ætla ekki þangað aftur. Það er alltaf vinna í sjálfum sér og á meðan verðum við sjálfselsk og dofin og hrindum tilfinningum frá okkur því það er ákaflega erfitt að eiga við allar tilfinningar þegar við erum þunglynd. En ég er þakklát fyrir þessa reynslu sem ég hef í dag og lífið sem ég lifi núna en enn er ég mjög viðkvæm fyrir öllu áreyti og forðast það eins og ég get svo að ég reyni að hafa lífið sem ánægjulegast og hrindi frá mér öllu óþægilegu eins og ég get. Auðvitað getum við ekki forðast allar óþægilegar uppákomur og ég er líka misjafnlega upplögð og þá þarf bara að reyna að taka á því á hverjum tíma og enn nota ég þá aðferð að draga mig í hlé ef mér finnst umhverfið ógnandi. Eitt stendur þó alltaf uppúr; ég forðast fólk sem reiðist auðveldlega og er oft reitt og veit jafnvel ekki af hverju það er reitt en hefur sig ekki í að vinna í sínum málum. Eða jafnvel veit ekki að það sé svona reitt inni í sér. Ég lærði það á sjálfstyrkingarnámskeiði að við reiðumst oftast þegar við getum ekki stjórnað. Hvort sem það eru aðstæður sem við ráðum ekki yfir eða einhver er ekki nógu meðfærilegur að okkar mati, þá verðum við reið af því að við ráðum ekki og getum ekki stjórnað. Eða jafnvel þegar við erum svo þröngsýn að við viljum ekki heyra annarra skoðanir og teljum okkar álit vera best. Til er gott spakmæli sem segir: Sannleikanum er hver sárreiðastur. Skrifað af SigrJo 06.09.2010 00:14Enn 20° C í sept. 2010Fimmta daginn í röð mælist yfir 20 stiga hiti á Norðurlandi, í þeirri óvenjulegu hitabylgju sem umlykur landið þessa dagana, á þeim árstíma sem venjulega telst til haustsbyrjunar. Mestur hefur hitinn í dag farið í 22,3 gráður í Ásbyrgi en nærri 22 stiga hiti hefur einnig mælst í Eyjafirði og Skagafirði í dag, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Veðurstofunnar. Þar með hafa allir fyrstu fimm dagar þessa septembermánaðar sýnt yfir 20 stiga hita á einhverri veðurstöð norðanlands, og einstaka stöðvar, eins og Torfur í Eyjafirði, hafa slegið í 20 stigin alla dagana. Mest voru hlýindin í gær þegar 25 stiga hiti mældist á Möðruvöllum í Hörgárdal. Samkvæmt langtímaspá verður áfram hlýtt á landinu næstu daga, allt fram á miðvikudag. Skrifað af SigrJo 04.09.2010 22:29Hitabylgja í September 2010Hitabylgja er nú á norðanverðu landinu og hefur hitinn í dag farið hæst upp í 25 gráður í Eyjafirði, nánar tiltekið á Möðruvöllum í Hörgárdal, þar sem hitamælir sýndi 24,9 gráður. Á Akureyri mældist 24 stiga hiti, á Mánárbakka norðan Húsavíkur fór hitinn í 24,3 gráður og raunar hefur verið um og yfir 20 stiga hiti um allt Norðurland. Óvenju hlýtt er á öllu landinu, miðað við að septembermánuður er genginn í garð. Veðurstöðvar á fjöllum og á hálendi hafa sýnt allt upp í 19 stiga hita, eins og á Mývatnsheiði, Vatnsskarði og Vaðlaheiði. Á heimasíðu Veðurstofu Íslands má sjá að í Reykjavík mældust 16,4 gráður, í Stykkishólmi 17,6 gráður, á Bíldudal 19,2 gráður og á Blönduósi 21,4 gráður. Á Egilsstöðum voru 18 gráður, í Skaftafelli 20,7 gráður og á Hellu mældust 18,9 gráður. Skrifað af SigrJo
Flettingar í dag: 294 Gestir í dag: 92 Flettingar í gær: 62 Gestir í gær: 16 Samtals flettingar: 249702 Samtals gestir: 28557 Tölur uppfærðar: 18.1.2025 05:58:24 |
Nafn: Sigrún Jóhanna ÞorsteinsdóttirTölvupóstfang: brunahlid8@hotmail.comAfmælisdagur: 14. júníStaðsetning: EyjafjörðurFaðir: Þorsteinn MarinóssonMóðir: Fjóla Kristín JóhannsdóttirUm: Velkomin á síðuna mína.Eldra efni
Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is