Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir |
|
Færslur: 2008 Nóvember25.11.2008 00:14Ást í hugum ungra barnaHvað er ást í hugum ungra barna? 4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína. Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og bara sat þar. Þegar móðir hans spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði hann: "Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta" Skrifað af SigrJoh 22.11.2008 00:56StjórnmálinTillögu til þingsáyktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar var dreift á Alþingi í dag. Flutningsmenn tillögunnar eru Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Þar segir: Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið fyrir 31. desember og efnt til almennra þingkosninga í framhaldinu. Sko ! Steingrímur ¨afi¨ Sigfússon er skólabróðir minn og Valgerður er fyrrverandi kærasta móðurbróður míns. Ég held bara að ég verði að styðja þau Skrifað af SigrJoh 17.11.2008 13:42Bjórinn og sjónvarpiðVið hjónin sátum við sjónvarpið og af því að það var ekkert spennandi í því þá spjölluðum við saman.
Meðal annars töluðum við um dauðann og hvað við myndum vilja að yrði gert ef hann bæri svona og svona að. Maðurinn minn sagði þá að hann vildi ekki að sér yrði haldið lifandi með tækjum og fljótandi fæði til að halda honum á lífi. Ég stóð náttúrulega strax á fætur, slökkti á sjónvarpinu og hellti niður bjórnum hans. Skrifað af SigrJoh 16.11.2008 21:07Árshátíð SM starfsmannaÞá er Árshátíð SM starfsmanna lokið. Starfsmenn byrjuðu daginn á að fara á Þelamörk og spila bandí í íþróttasalnum. Til allrar lukku stórslasaðist enginn og síðan fóru þeir í keilu á Kaffi Jónsson. Okkur mökum þeirra (sem flestir eru konur) buðu þeir upp á dekur í Hár og heilsu. Ég byrjaði á að fara með bilaða sjónvarpið í Nortek til Valgeirs og tók myndir af sólinni og Súlum á meðan ég beið eftir að hann kæmi frá Glerartorgi þar sem hann var að laga einhverjar vitlausar tengingar í þjófavarnarkerfinu. Síðan fór ég í slökunarnuddið sem ég valdi og Inga frænka fékk það hlutverk að nudda mig og gerði það vel. Ég hafði að sjálfsögðu myndavélina með og smellti mynd af þeim konum sem ég náði í förðun og hárgreiðslu og má sjá afraksturinn af þeim fegrunaraðgerðum á myndum sem teknar eru á árshátíðinni um kvöldið. Skrifað af SigrJoh 11.11.2008 00:06Davíð frá, krónan út, og ríkisstjórnin fellurFannst þetta áhugavert og geymdi það! Gunnlaugur
Guðmundsson. sev skrifar: "Ég held að
við leggjum niður krónuna og göngum í Evrópusambandið. Ísland mun ganga til
liðs við heiminn og nýtt fólk komast til valda," segir Gunnlaugur
Guðmundsson stjörnuspekingur. Davíð frá í
nóvember? Gunnlaugur segir Davíð Oddson
seðlabankastjóra að mörgu leiti táknmynd gamla Íslands. "Það er þó ekki hægt að
afskrifa Davíð. Hann er steingeit og þær eru seigar," segir Gunnlaugur.
Hann bætir við að þegar menn fari að spyrja sig hví fór sem fór, þá átti þeir
sig á því að allt gerðist þetta á vakt Davíðs. "Það er ákveðin staða í hans
korti núna um miðjan nóvember sem gefur til kynna miklar breytingar. Það kæmi
mér ekki á óvart að hann færi frá nú í nóvember," segir Gunnlaugur, sem
telur að þetta hafi þegar verið ákveðið, en Davíði verði leyft að halda
andlitinu. Skrifað af SigrJoh 09.11.2008 15:21Sumir Íslendingar!Innistæðulaust oflæti. ÞJÓNUSTUSTÚLKA á veitingahúsi á flugvellinum í Minneapolis sagði einu sinni við mig að hún þekkti alltaf úr Íslendingana í farþegahópunum á flugvellinum. »Þeir eru yfirleitt í merkjafötum, eins og Burberry og svo stika þeir áfram með nefið upp í loftið, eins og þeir eigi allan heiminn.« Jæja. Sic transit gloria mundi (þannig dvínar heimsins dýrð). Þessa dagana er þjóðin niðurlút og þeir sem eiga Burberry varning munu ef til vill reyna að selja hann á eBay í framtíðinni til að hafa upp í matarreikningana. Ég hef búið í Bandaríkjunum meira eða minna í 15 ár og mér hefur allt fundist einkennilega heillandi að fylgjast með íslensku neysluorgíunni, bæði úr fjarlægð og þegar ég er heima. Kannski var ég bara abbó að hafa ekki efni á Burberry nema því sem selt var á eBay, en upp úr aldamótum fór maður virkilega að klóra sér í hausnum yfir þenslunni á Íslandi - verslununum, nýbyggingunum og sýndarneyslunni (norski hagfræðingurinn Thorsten Veblen hefur áreiðanlega séð fram í tímann, til Íslands okkar tíma, þegar hann árið 1899 kom fram með hugtakið conspicuous consumption). Auðvitað náði þetta »góðæri,« eða réttara sagt þetta innistæðulausa oflæti ekki til allra. Almennt verkafólk og launafólk - eins og foreldrar mínir, opinberir starfsmenn í áratugi - var ekki að spjátra sig í Burberry. En svo margir virtust velta sér í peningum og fjölmiðlar fjölluðu mun meira um skattlausa útherjana á ofurlaunum og kokkteilpartíin þeirra heldur en um kjör launþeganna sem að mestu bera ábyrgðina á að greiða rekstrarkostnað íslensks samfélags. Eitt sinn í Íslandsbankaútibúinu mínu (þegar ég skrifaði einu sinni að Glitnir væri »besti banki í heimi« var ég að tala um Brynjólf Gíslason og starfsfólk bankans í Gullinbrú) gat ég ekki orða bundist og spurði ráðgjafann, sem hafði unnið þar í mörg ár, um allan þennan vöxt. »Hvaðan koma peningarnir til að gera þetta allt?« - því ég er ein af þessum gamaldags týpum sem trúa að það hljóti eitthvað að þurfa að vera á bak við fullt af peningum, einhver verðmæti. »Elskan mín, þetta eru bara pappírar,« sagði hún. »Það er ekkert á bak við þetta; þetta hrynur allt saman eftir nokkur ár.« Gamli sögukennarinn minn sagði að eftir seinni heimsstyrjöldina hefðu spekingar í bresku leyniþjónustunni sagt að Íslendingar myndu aldrei getað stjórnað sér sjálfir; að pólitíska valdastéttin á Íslandi væri svo upptekin af eigin hagsmunum og svo spillt af pólitískri innræktun að hún myndi aldrei hafa velferð þjóðarinnar að leiðarljósi. Ái! Bretarnir höfðu heldur betur rétt fyrir sér. Það er óraunverulegt að horfa á ráðherrana í Sjálfstæðisflokknum og seðlabankastjóra blaðra í sjónvarpsfréttum um efnahagshrunið - þetta er fólkið sem færði fermingardrengjunum í Sjálfstæðisflokknum á silfurfati stofnanir í eigu almennings til að ræna þær og rupla og stinga svo af með gróðann úr landi, sama fólkið sem undanfarin ár hefur verið að skála við útrásarvíkingana í kokkteilboðum. Að þessir pólitíkusar skuli ekki hafa þá ögn af sóma til að segja af sér sýnir hversu fullkomið þeirra virðingarleysi er gagnvart íslenskum almenningi. Núverandi ríkisstjórn ætti að segja af sér, boða ætti til nýrra kosninga og nýtt Alþingi ætti síðan að setja lög þess efnis að gera upptækar eignir íslensku fjárglæframannanna. Síðan þyrfti að ráða erlenda sérfræðinga, sem engra hagsmuna eiga að gæta á Íslandi, til að bjarga því sem bjargað verður, þar sem íslenskir stjórnmálamenn hafa sýnt að þeim er ekki treystandi fyrir tómum sparibauk. Í leiðinni væri ráð að láta erlendu sérfræðingana skera niður yfirbygginguna í íslensku þjóðfélagi sem er slík að annað eins tíðkast hvergi á byggðu bóli. Seðlabankinn, - batterí sem hefði komist fyrir í skúffu í Landsbankanum fyrir nokkrum áratugum; ekki dugir minna en að hafa þrjá seðlabankastjóra. Skrifað af SigrJoh 06.11.2008 00:02Orlof húsmæðraOrlofsnefnd húsmæðra í Eyjafirði hefur komið sér upp heimasíðu á netinu og er slóðin á síðuna: www.123.is/orlofey Þar verða settar inn myndir úr orlofsferðum og upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir og annað tilfallandi. Skrifað af SigrJoh 04.11.2008 00:15Um kreppuna!!!Smá dæmisaga vegna hinnar svokölluðu "kreppu" Skrifað af SigrJoh 02.11.2008 11:50Marinó Þorsteinsson 50 áraManni bróðir náði þeim áfanga að verða 50 ára 28. október 2008. Veisla var haldin í Árskógi 1. nóvember og tók ég myndir og setti þær svo á myndasíðuna þar sem hægt er að skoða þær. Veislan heppnaðist vel og þegar við fórum heim var komið fram á nótt og Manni var ennþá að dansa og það brosandi út að eyrum. Gaman væri nú að fá kvitt í gestabókina frá ykkur sem skoðið myndirnar. Skrifað af SigrJoh
Flettingar í dag: 290 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 109 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 235486 Samtals gestir: 26597 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:49:38 |
Nafn: Sigrún Jóhanna ÞorsteinsdóttirTölvupóstfang: brunahlid8@hotmail.comAfmælisdagur: 14. júníStaðsetning: EyjafjörðurFaðir: Þorsteinn MarinóssonMóðir: Fjóla Kristín JóhannsdóttirUm: Velkomin á síðuna mína.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is