Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir |
|
Færslur: 2008 Október19.10.2008 21:45Safnasafnið og SveinbjarnargerðiHaustfundur hjá Öldunni-Voröld 2008 var haldinn laugardaginn 18. okt. Þar sem ekkert varð úr vorferð þetta árið þá var ákveðið að gera okkur eitthvað til skemmtunar í leiðinni og fórum við í Safnasafnið á Svalbarðsströnd og síðan héldum við í Sveinbjarnargerði og héldum fund og fengum okkur svo að borða. Maturinn bragðaðist alveg sérstaklega vel og álít ég að allar hafi farið saddar og ánægðar heim að því loknu. Þar voru líka starfsmenn á Heilsugæslustöðinni á Dalvík, ásamt læknisfrúnni, að borða og skemmta sér í skemmtilegum Týrólabúningum og smellti ég mynd af þeim líka. Skrifað af SigrJoh 15.10.2008 23:15Hlutabréf og Thule bjórEf þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf í Nortel fyrir einu ári, væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 kr. Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron, væri sú eign í dag u.þ.b. 1.650 kr. Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 kr. væri minna en 500 kall eftir. Hefði peningurin hins vegar verið notaður til að kaupa Thule bjór fyrir ári, þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 kr. upp úr því. Þegar ofangreint er athugað, virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna !!! Þetta barst í tölvupósti og þar sem ég hef ekki verið fylgjandi hlutabréfakaupum (ég nota peningana sem ég afla og fer létt með að eyða þeim) þá fannst mér tilvalið að setja þetta á síðuna. Skrifað af SigrJoh 15.10.2008 01:02Maður við stjórnMaður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er. Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð milli 40. og 41. notðlægrar breiddargráðu og mili 59. og 60. vestlægrar lengdargráðu. Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn. Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það? Nú, svaraði maðurinn. Allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína. Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við sjórnun. Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það? Nú, sagði konan, Þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn orðin mín sök. Skrifað af SigrJoh 15.10.2008 00:45Sofnaði í ruslagámi og lenti í ruslaþjöppuDrukkinn Tékki er alvarlega slasaður eftir að hann sofnaði í ruslagámi í gær. Varð maðurinn fyrir því óláni að gámurinn var tæmdur í ruslabíl sem þjappaði sorpið úr gámnum. Var maðurinn fluttur á sjúkrahús með innvortis blæðingar. Maðurinn, sem er 25 ára gamall, býr í bænum Znojmo. Ekki er vitað frekar um líðan hans en tékkneska fréttastofan CTK greindi frá þessu í dag. Lögregla rannsakar nú hvort ruslamaðurinn hafi gætt að því að opna ruslagáminn og kannað innihald hans, líkt og krafist er samkvæmt öryggisreglum. Þessi frétt er á mbl.is Skrifað af SigrJoh 13.10.2008 00:05Nýr peningaseðill ??
Hafið þið séð nýja íslenska seðilinn? Fann þennan á netinu og ákvað að deila honum með ykkur. Skrifað af SigrJoh 04.10.2008 02:01BankarnirÞað kostar að
bjarga bönkunum frá snörunni Eftir Guðbjörn Guðbjörnsson Lífeyrissjóðirnir
eru að mínu mati heilagir og inneignir í þeim ætti því ekki að snerta til
að eyða í einhverjar áhættufjárfestingar. Fjárfestingar í íslenskum
fjárglæfrafyrirtækjum eða bönkum, sem eru á barmi gjaldþrots teljast til
slíkra áhættufjárfestinga. Á móti koma
þau sjónarmið, að hér á landi sé allt á heljarþröm. Atvinnulífið sé
að stöðvast og gífurlegt atvinnuleysi blasi við. Verðbólgan sé á leiðinni
í 20% og allir bankarnir séu leiðinni á hausinn. Verðbólgan undanfarna
mánuði hefur gert það að verkum að verðtryggð lán hafa hækkað mikið og
ekkert lát er á þeim hækkunum á næstunni. Vegna falls krónunnar hafa lán
tekin í erlendri mynt einnig hækkað um tugi prósenta á nokkrum mánuðum.
Almenningur er ráðþrota og á barmi örvæntingar. Illskásta
lausnin er því líklega að lífeyrissjóðirnir hjálpi til við lausn mála. Tryggja
verður að þeim fjármunum verði ekki fórnað af þeim sem komið hafa þjóðinni á
hausinn - sjálftökuliðinu. Til að almennt launafólk og lífeyrisþegar samþykki
slíkar ráðstafanir er eðlilegt að umbunin sé ríkuleg. Eðlilegt er að bankarnir
skipti um eigendur og fari í hendur þeirra, sem björguðu þeim. Þeir sem eru að
bjarga bönkunum eru þeir sömu og borgað hafa okurvexti á verðtryggðum
lánum eða sitja uppi með lán í erlendri mynt sem hækkað hafa gífurlega í
íslenskum krónum. Samúð almennings er skiljanlega minni en engin. Með öllum
ráðum verður að tryggja efnahagslegan stöðugleika í landinu og að
slíkar hörmunar dynji ekki aftur á þjóðinni. Það verður að mínu
mati aðeins gert með einu móti: aðild að ESB og upptöku
evru. Samtök atvinnulífsins og samtök launamanna eiga ekki sætta
sig við neina aðra lausn en að framan getur. Stjórnmálamenn allra
flokka verða loksins að leggja við hlustirnar, að öðrum kosti verður að
skipta þeim sem ekki hlusta út fyrir þá sem kunna að hlusta á þjóð sína. AthugasemdirVegna þess að lífeyrissjóðirninr eru "heilagir" eins og þú orðar það vel, -þetta er jú ævisparnaður launþega-, eru lögin um lífeyrissjóði mjög ströng. Lífeyrissjóðir hafa ekki "áhættufrelsi" eins og flestir aðrir fjárfestar. Ég sé ekkert sem getur teimt þessa peninga "heim" nema ríkistryggð skuldabréf. En hversvegna er aðeins talað um eignir lífeyrissjóðanna í þessu sambandi, hvað með eignir bankanna, stórfyrirtækjanna, auðmannanna.....???? sigurvin (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 01:08 Sigrún: Leyfi mér að birta þetta blogg vegna þess að ég er sammála Guðbirni og líka Sigurvini sem gerir athugasemd. Skrifað af SigrJoh
Flettingar í dag: 290 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 109 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 235486 Samtals gestir: 26597 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:49:38 |
Nafn: Sigrún Jóhanna ÞorsteinsdóttirTölvupóstfang: brunahlid8@hotmail.comAfmælisdagur: 14. júníStaðsetning: EyjafjörðurFaðir: Þorsteinn MarinóssonMóðir: Fjóla Kristín JóhannsdóttirUm: Velkomin á síðuna mína.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is