Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir |
|
Færslur: 2008 Janúar22.01.2008 00:47Áhrif gosdrykkju.Og svo er það heilsan okkar. http://www.heilsubankinn.is/vefur/index.php Skrifað af Sigrún 22.01.2008 00:15GolfÞá veit ég af hverju golfið er að verða svo vinsælt hjá sumum konum !!! http://www.dv.is/divi/spila/fqcdxoh358zr1lw3be015gb9s2q Skrifað af Sigrún 22.01.2008 00:03Hrútasýning???Þetta minnir mig á hrútasýningu þar sem velja á hrúta til undaneldis og kjötframleiðslu. http://www.dv.is/divi/spila/902zbqccdu2qvcndtwy7i9zdxwq Skrifað af Sigrún 21.01.2008 11:45Þrælheppinn þessi.Ótrúleg heppni. http://www.dv.is/divi/spila/5ztnjzfqcpcdazgt6yw6i187q3vl5 Skrifað af Sigrún 15.01.2008 00:03GestabókinHæ hæ Ég sé að það eru einhverjir sem fara inn á síðuna mína en eru rosalega feimnir við að kvitta fyrir sig í gestabókina. Mér þætti vænt um að einhverjir kvittuðu fyrir sig, þarf ekki að vera neitt merkilegt. Kveðja Sigrún Skrifað af Sigrún 14.01.2008 00:02Árið 2007Það helsta sem gerðist árið 2007. Amma mín Sigrún Guðbrandsdóttir varð 90 ára 1. janúar. Hún var búin að banna okkur að hafa veislu fyrir hana og ætlaði að láta sig hverfa og vera að heiman. Seinna sagði hún mér að hún hafði ætlað að fara út á Árskógsströnd þar sem hún er fædd, og koma við í kirkjugarðinum hjá foreldrum, dóttur sinni og ömmu sem eru jarðsett þar. En veðurspáin var ekki góð þennan dag og auk þess hafði Gunna komið norður og skipulagt smá kaffisamsæti hjá Ingu út í Skógarhlíð. Þar komum við nokkur saman og sú gamla fékk sér smá sérrí og lék á alls oddi og hafði gaman af. Seinna sagði hún mér að hún hefði ekki viljað halda upp á afmælið vegna þess að hún þekkti svo marga sem höfðu dáið eftir afmælisveislu!! Nema hvað, í mars þá veikist hún og lést þann 24. og var jarðsett 29. mars í Laufási. Hún var samt svo heppin að fá að búa á heimili sínu þar til hún veiktist og fór á FSA og það var þessi sjálfstæða kona mjög ánægð með. Fyrsti sólardagurinn var 13. janúar. Nú árið 2008 skein sól á Akureyri 9. janúar. Fórum á þorrablót hjá Flökkurum 20. jan. og skemmtum okkur vel. Kvenfélagið Aldan-Voröld í Eyjafjarðarsveit réðst í það stórvirki að fara í utanlandsferð nr. 2. Þar sem ég er í ferðanefnd þá fór töluverður tími í að skipuleggja þá ferð, en ég hafði gaman af því og héldum við til Tallinn í Eistlandi 30. mars og komum heim aftur 4.apríl. Samt ekki nógu snemma til að ég gæti farið út á Grenivík í 60 ára afmælisveislu móðurbróður míns, Badda í Áshóli og Anna Marý dótturdóttir mín varð 7 ára þennan dag. Fúsi fékk leyfi til að fara með, því hann hefur tvisvar staðið í pönnukökubakstri fyrir félagið og ég held að hann langi bara til að teljast með í kvenfélaginu. Þann 21. apríl hefðu foreldrar mínir átt 50 ára brúðkaupsafmæli og ég varð 50 ára 14. júní og hafði smá veislu þann 16. Í júlí fórum við í Stóruferð Flakkara sem var þetta árið á Vestfirðina. Við fengum frábært veður og þar sem ég hafði ekki komið á flesta þessa staði áður, þá fannst mér það meiriháttar og útsýnið einstakt. Myndir úr þessari ferð eru á síðunni undir F 215. Síðari aðgerðin á augum mínum var gerð 1. ágúst og nú get ég lesið og fleira (með gleraugum) og er það mikill munur frá því sem var síðustu ár. Ég lenti svo með Ingu á Flúðum um verslunarmannahelgina og var það bara skemmtilegt. Við skelltum okkur á Fiskidagana miklu á Dalvík 10. - 12. ágúst og dvöldum í nýja hjólhýsinu okkar í garðinum hjá Snjólaugu og Jóni. Árshátíð Flakkara var haldin á Stóru-Tjörnum 15. sept. Góður matur þar. 21. sept. fór ég í mína fyrstu söluferð til Skagastrandar og það gekk bara nokkuð vel. 22. sept fórum við til Ingu og Inga í Innri-Njarðvík og haldið var upp á 4 ára afmæli Emblu Dísar, 50 ára afmæli Inga og svo hefði mamma orðið 70 ára. Auk þessa alls var haldið upp á það að Inga og Ingi eru flutt í nýja húsið sitt. Myndir eru frá þessum atburði undir "Afmæli". 8. nóvember fór SM til Kaupmannahafnar og var haldin árshátíð þar í gömlu klaustri (sjá myndir). 6. desember voru litlu-jólin haldin í Öldunni-Voröld. Komum við saman hjá Vilborgu, áttum saman notalega kvöldstund og var maturinn fenginn frá Bautanum. Þetta er það helsta sem ég get rifjað upp frá árinu 2007 og læt ég þessu lokið í bili. Skrifað af Sigrún 13.01.2008 17:06VideoskotÞegar ég er í letikasti þá dunda ég mér oft við að skoða blogg og myndasíður í tölvunni og einnig fyndin videoskot. hér eru linkar á nokkur skot sem létta lundina hjá mér. http://www.dv.is/divi/spila/0znkdj16fbt5vfkkoyfb3u1pne0quq http://www.dv.is/divi/spila/intz5qumvzphwnkij4cehoqh6 http://www.dv.is/divi/spila/jamikce8w39ifppjrf2uc1p6f9c92 http://www.dv.is/divi/spila/hak5tlchlkpsrdyxv8m3rds1vbwp http://www.dv.is/divi/spila/fy99j6q7oa8mtyhbmocf1hjibaeg Eitt fyrir Flakkara. http://www.dv.is/divi/spila/5dwul4oftfl21qch2gik99fzem8q7 Eitt fyrir heppnina. http://www.dv.is/divi/spila/m6qzk2nejfxhcricsz1ixof95 Eitt fyrir rómantíkina. http://www.dv.is/divi/spila/ih2nuv7nw8ybzky984h7dad6xy7u Og hér er eitt fyrir leikjaspilarana. http://www.dv.is/divi/spila/kltwxb9idpxy0iwywnqb2ghkke3ff Skrifað af Sigrún 11.01.2008 00:01Gott þettahttp://www.dv.is/divi/spila/6fiityiphxhxtoxs3nrt3uvv754 Þetta er linkur á videoskot sem mér fannst fyndið. Skrifað af Sigrún
Flettingar í dag: 290 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 109 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 235486 Samtals gestir: 26597 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:49:38 |
Nafn: Sigrún Jóhanna ÞorsteinsdóttirTölvupóstfang: brunahlid8@hotmail.comAfmælisdagur: 14. júníStaðsetning: EyjafjörðurFaðir: Þorsteinn MarinóssonMóðir: Fjóla Kristín JóhannsdóttirUm: Velkomin á síðuna mína.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is