Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir |
|
02.03.2008 14:34Börnunum fjölgarÞað hefur fjölgað um 3 börn í stórfjölskyldunni. Á Árskógsströnd búa Steini bróðursonur minn og Kristín. Þau eignuðust Bergdísi Birtu þann 17. júní 2007. Hún á 2 systkini og þau heita Sandra Ósk og Baldur Smári. Á Kirkjubæjarklaustri búa Ása systir mín og Siggi. Þau eignuðust Gunnar Val þann 3. nóvember 2007. Hann á stóra systur sem heitir Herdís Lind og það á að ferma hana á sumardaginn fyrsta og þá verður Gunnar Valur líka skírður. Þann 1. mars 2008 fæddist lítil stúlka á Akureyri. Foreldrar hennar eru Fjóla Ósk systurdóttir mín og Ásgeir. Hún á líka "stóra" systur sem heitir Embla Dís. Linkar á síðurnar þeirra eru á forsíðunni minni. Það þarf að vísu að hafa lykilorð á síðurnar þeirra Gunnars og Bergdísar en það er örugglega hægt að fá það uppgefið hjá þeim ef einhver vill. Veturinn. Það er komið að sunnlendingum að hafa vetur núna 07-08. Í fréttum er sagt frá því að á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum stefnir í það að starfsfólk vinni 3ju vaktina í röð vegna þess að björgunarsveitin hefur ekki komist með starfsfólk til vaktaskipta að sjúkrahúsinu vegna ófærðar og veðurs. Og í Vík í Mýrdal er ófært núna og á Kirkjubæjarklaustri hefur verið snjór síðan í desember að sögn Ásu. Annars er nú hvítt yfir öllu hér fyrir norðan og ákaflega fallegt að horfa hér í kringum okkur. Set inn nokkrar vetrarmyndir sem teknar eru hér í nágrenninu og ég ætla líka að stelast til að setja nokkrar myndir af barnalandi inn á síðuna mína. Skrifað af Sigrún 18.02.2008 22:02Meira um tölvupóstinnFlott þessi Sá þessa mynd á síðunni hjá Hafrúnu hans Sigga og mér fannst þetta svo sniðugt að ég ákvað að stela afriti á mína síðu. Vona að Hafrúnu sé sama un það. Til allra vina og vandamanna sem sendu mér tölvupóst árið 2007 með loforðum um heppni og hamingju ef ég sendi póstinn áfram. ÞETTA VIRKAÐI EKKI ! Vinsamlegast sendið mér bara peninga, handavinnudót eða nammi árið 2008 Takk fyrir! Þetta er svona í stíl við það sem ég setti á síðuna 12. 2. 08Skrifað af Sigrún 18.02.2008 00:10Flottur ferðavinningur!Var aldeilis heppin í gær!! Fékk hringingu frá ferðaskrifstofu í gær og karlmannsrödd tjáði mér á ensku að ég hefði unnið ferð fyrir 4 til Flórída. Og ekki nóg með það, ég á líka að fara á skemmtiferðaskipi til Bahamaeyja! Aldeilis flott það. Eftir að hafa talað við manninn í dágóða stund á ensku þá náði ég því að þetta væri nú aldeilis góður vinningur að verðmæti um 3000 dollara. Enskan mín er ekki eins góð því að ég þurfti nokkrum sinnum að biðja hann að endurtaka það sem hann var að segja því að ég náði því ekki alltaf. Og ég var ekki nógu spennt fyrir þessu! Vinningurinn er bara fyrir þá sem hrópa húrra, eða þannig. Hann var með netfangið mitt, nafn og heimilisfang og ég átti að hafa skráð mig á netinu hjá ferðaskrifstofu og var dregin út og fékk þennan flotta vinning. Aðeins einn hængur var á. Ég þurfti að gefa þeim upp kortanúmerið mitt svo að þeir gætu tekið út 998 dollara eða að þeirra sögn aðeins15% af kostnaði við ferðina s.s. skatt og eitthvað fleira. Ég gat nú ekki skilið af hverju ég þyrfti nauðsynlega að gefa upp kortanúmerið í símann strax, en jú það var vegna þess að þeir ætluðu að póstleggja farseðilinn samdægurs þó svo að ég ætti að hafa 18 mánuði til að ákveða hvenær ég færi. Ég sættist ekki á það og mér var sagt að fara í tölvuna og slá inn veffangi sem væri heimasíðan á ferðaskrifstofunni þeirra. Ég gerði það en fékk enga síðu upp honum til mikillar undrunar?? Ég sagði honum að hann yrði bara að senda mér tölvupóst með þessum upplýsingum því ég væri ekki viss um að ég skildi þetta alveg og hann jánkaði því og lagði frekar snöggt á. Engan hef ég fengið tölvupóstinn ennþá. Aumingja mennirnir. Að þurfa að borga fyrir hálftíma utanlandssímtal og ekki getað fengið upp kortanúmerið mitt!! Ágúst Örn bauð okkur í kaffi í tilefni af 6 ára afmælinu sínu þann 19. febrúar og ég tók nokkrar myndir og setti á síðuna. Skrifað af Sigrún 12.02.2008 21:43Takk fyrir tölvupóstinnNú þegar árið 2007 hefur runnið sitt skeið, langar mig að nýta tækifærið og þakka fyrir alla tölvupóstsendingarnar sem ég hef fengið frá ykkur. Ég verð að segja að lífsgæði mín hafa aukist til muna við sendingarnar. Takk til þess (hver sem það nú var) sem sendi mér upplýsingarnar upp að það hefði í mörgum tilfellum fundist rottuskítur í límröndinni á umslögum. Þær dýrmætu upplýsingar leiddu til þess að ég nota nú votan klút í hvert skipti sem ég þarf að loka umslagi. Af sömu ástæðu finn ég mig nú knúna til að þvo hverja dós sem ég þarf að opna. Í dag á ég heldur ekkert sparifé, þar sem ég hef sent það allt til litlu veiku stúlkunnar (Penny Brown) sem er akkúrat núna í andaslitrunum á sjúkrahúsinu í 1.387.258 skiptið. Ég á í rauninni enga peninga lengur. en það mun náttúrulega breytast um leið og ég fæ 500.000$ sem Microsoft ætlar að senda mér fyrir að hafa verið "exclusivur" þáttakandi í e-mail prógramminu þeirra. Ég á líka von á aur frá miðaldra getulausum bankastarfsmanni frá Nígeríu sem hefur lofað að deilda 7 milljónum$ með mér. Aur sem hann erfði eftir að gleymdur ættingi hans lést í skelfilegu umferðarslysi í höfuðborginni Abuja. Yndislegur maður hann Ade Oluwa! Alveg sérstök sál. Sem betur fer þarf ég ekki að óttast um sál mina, þar sem ég er blessuð með 363.214 englum sem passa mig og vakta sérhvert spor mitt og St. Helena hefur líka boðist til að uppfylla allar mínar óskir. Mig langaði bara að segja ykkur frá því að ég nota ekki lengur krabbameinsvaldandi svitalyktaeyði, þrátt fyrir að ég lykti illa af svita á heitum sumardegi. Ég er alveg hætt því! Takk fyrir að sýna mér og kenna að óskir mínar muni aldrei verða uppfylltar nema ég áframsendi tölvupóstana mina til amk 7 einstaklinga á innan við 5 mínútum. Ég vil einnig þakka ykkur fyrir að hjálpa mér með að hætta að drekka Coca Cola, og upplýsa mig um að það megi hreinlega fjarlægja kalkúrfellingar úr salernum með því. Ég set aldrei lengur bensín á bílinn hjá Olís án þess að vera vakandi fyrir því að pólskur fjöldamorðingi sem komist hefur ólöglega inn í landið, gæti mögulega hafa laumað sér á í aftursætið meðan ég fylli tankinn. Ég svara ekki lengur neinum sms-um, þar sem það kostar mig 25.000 kr. að svara ákveðnum númerum. Fyrir tilstuðlan vingjarnlegar ráðlegginga, get ég nú ekki lengur leyft mér að beygja mig eftir krónu sem liggur á götunni, þar sem það liggur eflaust kolóður kynferðisglæpamaður undir bílnum og bíður þess að geta gripið í fæturna á mér og dregið mig til sín og nauðgað mér. Ef þú sendir ekki þennan tölvupóst til amk 144.000 einstaklinga á næstu 70 mínútum, þá mun risavaxin dúfa með svæsin niðurgang lenda á höfðinu á þér kl. 17 nú í dag og flær úr 12 mongólskum kameldýrum munu skríða inn í bakið á þér og orsaka að rassinn á þér verður allur kafloðinn. Og svo langar mig bara líka að deila því með ykkur að Suðuramerískur vísindastúdent sem ég þekki hefur eftir langar og strangar rannsóknir uppgötvað að aðeins einstaklingar með lága greindarvísitölu, sem stunda lítið kynlíf eru manneskjurnar sem alltaf lesa alla tölvupósta með höndina á músinni. Lifið svo innilega heil. (Fékk þetta sent með tölvupósti. Höfundur óþekk(t)ur) Skrifað af Sigrún 11.02.2008 01:13Kvitt í gestabókinaÞað væri gaman að fá fleiri færslur í gestabókina mína. Hann Addi var svo vænn að kvitta í gestabókina fljótlega eftir að ég opnaði síðuna, en hann er ákaflega einmana þar finnst mér. Skrifað af Sigrún 06.02.2008 23:47VetrarmyndirTók nokkrar góðar vetrarmyndir í dag. Fallegt veður þó að það hafi verið svolítið kalt í dag. Þessi snjór fær sennilega ekki að vera í friði því að spáin er ekki of góð. Gæti orðið hvasst þó að það eigi að vera besta veðrið hér á norðausturlandi, en það er það svæði sem við fylgjum oftast í veðurspánum. Annars komst ég heim að húsi á jeppanum áður en mokað var. Flestir höfðu skilið bílana eftir niður á vegi, en það er nú nauðsynlegt að vera á fjórhjóladrifsbíl hér ef maður ætlar að komast heim að húsi á veturna þegar er snjór og hálka. Skrifað af Sigrún 03.02.2008 16:16SnjórinnSetti inn nokkrar myndir sem ég tók í dag af kisunni Dökkvu og snjónum. Skrifað af Sigrún 02.02.2008 14:41VatnsrúmiðSá sem elskar er blindur; sá sem hatar sér ofsjónir. Fann þetta á annari bloggsíðu og fannst það eiga vel við það sem ég þekki. Ég get alltaf hlegið að þessu video þegar ég rekst á það: http://www.youtube.com/watch?v=vdDMpx7e-0I Nú er kominn snjór. Það sem af er vetri hefur verið svo til eintómir umhleypingar í veðrinu. Það var verið að moka í hverfinu áðan og ég fór út með skóflu og mokaði frá dyrunum og sópaði af bílnum. Ég held að það hafi verið u.þ.b. 50 cm. snjólag á bílnum svo að það hefur verið allsæmileg ofankoma síðan í gærkvöld. Mér finnst alltaf fallegt úti þegar flest allt er hulið snjó og bjart yfir öllu. Það er farið að snjóa aftur svo líklega þarf nú að fara út og moka aftur áður en langt um líður, það er nú einu sinni hávetur núna. Skrifað af Sigrún 22.01.2008 00:47Áhrif gosdrykkju.Og svo er það heilsan okkar. http://www.heilsubankinn.is/vefur/index.php Skrifað af Sigrún Flettingar í dag: 290 Gestir í dag: 119 Flettingar í gær: 109 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 235486 Samtals gestir: 26597 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:49:38 |
Nafn: Sigrún Jóhanna ÞorsteinsdóttirTölvupóstfang: brunahlid8@hotmail.comAfmælisdagur: 14. júníStaðsetning: EyjafjörðurFaðir: Þorsteinn MarinóssonMóðir: Fjóla Kristín JóhannsdóttirUm: Velkomin á síðuna mína.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is