Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Flokkur: Ýmis fróðleikur

26.07.2012 16:22

Eru eldri borgarar óvitar?

Vasklegir eldri borgarar

Það er furðulega sterk hneigð í íslensku samfélagi að líta á gamalt fólk nánast sem óvita sem þurfi að hafa stöðuga gát á svo þeir fari sér ekki að vo...

Það er furðulega sterk hneigð í íslensku samfélagi að líta á gamalt fólk nánast sem óvita sem þurfi að hafa stöðuga gát á svo þeir fari sér ekki að voða. Þannig finnast einstaklingar sem skotra stöðugt áhyggjuaugum til gamla fólksins og telja brýnt að hafa vit fyrir því og helst geyma það á stofnun þar sem ekkert ónæði stafi af því. Nú er samt svo að gamalt fólk hefur yfirleitt sjálfstæðan vilja og á ekki í erfiðleikum með að mynda sér skoðanir. Það þarf ekki stöðugt að taka ákvarðanir fyrir þetta fólk eins og það sé ómálga börn heldur á það, eins og aðrir fullorðnir, rétt á því að velja úr sem flestum möguleikum. Ellin á ekki að verða til þess að fólk sé sett á geymslustað þar sem er komið fram við það eins og það sé úr sér gengið eintak af manneskju sem sé búin að glata öllum sjálfstæðum vilja og því þurfi að hugsa fyrir hana. Eins og aðrir þarf gamalt fólk hæfilegan frið til að fá að vera það sjálft.

Nú eru deilur um það hvort rétt sé að heimila sölu á áfengi á veitingastað á Hrafnistu. Það er alveg dæmigert fyrir íslenska umræðu að hópur manna skuli rísa upp vegna þessarar hugmyndar og góla af angist yfir því að gömlu fólki verði heimilað að kaupa sér rauðvínsglas á veitingastað á dvalarheimilinu þar sem það býr. Þessi vælandi hópur, sem segist bera hagsmuni eldri borgara fyrir brjósti, dregur síðan upp hrollvekjandi mynd af útúrdrukknum og afvelta gamlingjum skapandi alls kyns vandræði á viðkomandi dvalarheimili. Semsagt: allsherjar sukk og svínarí.

Það var leitt að sjá forstjóra Hrafnistu viðurkenna í kvöldfréttum sjónvarps að hann hefði að sumu leyti fengið bakþanka vegna harðrar gagnrýni á fyrirhugaða vínsölu til vistmanna. Svo virðist sem alls kyns þrýstihópar geti haldið fram hvaða vitleysu sem er og haft áhrif vegna þess að of margir þola ekki gagnrýni og hætta jafnvel við ágætar fyrirætlanir sínar af því öðrum líkar þær ekki. Bulli á annaðhvort að svara fullum hálsi eða láta eins og maður viti ekki af því. Síst af öllu eiga menn að láta kverúlanta ráða för. Það var því hressandi að heyra þetta sama kvöld í tveimur eldri borgurum sem hafa fengið nóg af bullinu og mótmæla því kröftuglega. Á skjáinn birtist eldri kona, vistmaður á Hrafnistu, greinilega mikill kvenskörungur, sem mislíkaði að talað væri til eldra fólks eins og stöðugt þyrfti að passa það. Hún sagðist hafa verið húsmóðir í um sjö áratugi og taldi það sjálfsagðan hlut að geta boðið gestum sínum upp á rauðvín með steikinni, eins og hún hefði gert áður í húsmóðurhlutverkinu. Annar eldri borgari, fyrrverandi sjómaður, tjáði sig svo í fréttatíma á annarri sjónvarpsstöð um bann við neftóbaki og sagðist alfarið vera á móti boðum og bönnum. Það var einkar ánægjulegt að heyra í fulltrúum gamla fólksins sem töluðu svo hressilega gegn forræðishyggjunni. Megum við sem flest verða jafn vasklegir eldri borgarar.

kolbrun@mbl.is

03.05.2012 00:48

Skapvonska

Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.

Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði misst stjórn á skapi sínu.

Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir. Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hníf og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafn slæm og líkamleg ör.

Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér..

07.03.2012 17:56

Dali Lama

"Það sem kemur mér mest á óvart í mannlegri tilveru er að maðurinn fórnar heilsu sinni til að eignast peninga. Svo fórnar hann peningum til að ná aftur heilsu sinni. 
Á sama tíma er hann svo spenntur fyrir framtíð sinni að hann nýtur ekki augnabliksins. 
Afleiðingin er sú að hann lifir hvorki í nútíð né framtíð. 
Og hann lifir eins og hann muni aldrei deyja og svo deyr hann án þess að hafa lifað.“  
Dalai Lama

04.02.2012 15:10

Ég er mamman


 

Barnið á brjóstið um leið og það fæðist
svo enginn í mafíunni að þér hæðist
Brjóst skaltu gefa í mánuði sex
...guðhjálpiþér gefirðu barninu kex

Gefirðu pela ertu óhæf móðir
þótt barninu finnist þeir yfirleitt góðir
Mjaltavélina skaltu leigja
Brjóst þín eru almenningseiga

Það mega allir rýna og spyrja og pæla
af hverju grænn kúkur, gubb og æla
Hvað er barninu fyrir bestu?
Allir hafa skoðanir á flestu

Þó þú sért mamman þá veistu ekki neitt
"Jeminn barnið er allt of feitt"
"Hann hlýtur bara að vera svangur"
"Af hverju er hann svona langur?"

"Af hverju er barnið ekki á brjósti?"
Spyr fólk með hneykslisþjósti
Getur það ekki gefið mér frið?
Þetta kemur andskotans engum við!

Þegar þau eldast skánar það ekki
fólk heldur áfram með sína hrekki
"Fær hann ennþá pela og snuð?"
Endalaust andskotans helvítis tuð

Vilji fólk endalaust hnýta og jaga
skal það fyrst sína galla laga
Efast ég um að þeirra ráð
séu eitthvað betri ef að er gáð

ég er ekki fullkomin mamma
ég á það til að öskra og skamma
En ég geri mitt besta, eins vel og ég kann
Að koma mínum börnum til manns

Meðan börnin mín brosa og gráta
sýna mér listir og gera mig káta
sofa og pissa og hlægja og gretta
er ég líklegast að gera það rétta

Mín eru börnin og ég er mamman
þú ert "bara" frænkan eða amman
ég veit þú vilt vel en hlustaðu nú
ég ætla ekki að gera allt alveg eins og þú

Á misjöfnu þrífast börnin best
og ég hef lesið mér til um flest
Vanti mig ráð kannski ég spyr þig
en hættu að agnúast út í mig.


Því ég er mamman, huggarinn og knúsarinn 
að eilífu amen.     Höfundur:  Ninna Karla Katrínardóttir 

 

29.01.2012 16:15

Auðvelt að plata okkur neytendur

" Því miður er ekki allt rétt sem haldið er fram um hollustu vissra matvæla, svo sem sykurs og hveitikorns, og ýmislegt ekki eins óhollt og haldið er fram," segir Jóhannes Felixson ( Jói Fel)." 

Hvað veistu um sykur og hveiti? Er til hollur sykur? Er lífrænt ræktaður matur hollari en annar? Og er spelt betra en venjulegt hveiti?

Því miður er ekki allt rétt sem haldið er fram um hollustu vissra matvæla, svo sem sykurs og hveitikorns, og ýmislegt ekki eins óhollt og haldið er fram," segir Jóhannes Felixson, formaður Landssambands bakarameistara. Hann segir sykur unninn úr sykurreyr eða sykurrófum, en hvað er þá hrásykur?

"Hrásykur er alveg sami sykurinn en hefur ekki farið í gegnum síðasta vinnsluferli sykurs, sem telst mikið unnin vara. Því verður eftir dökkt síróp sem kallast melassi og er stundum bætt við hvítan sykur svo úr verður hrásykur, og þannig er púðursykur búinn til," segir Jói og bætir við að melassi innihaldi örlítið af bætiefnum sem þó hafi engin teljandi áhrif á næringargildið.

"Hrásykur meltist og nýtist líkamanum nákvæmlega eins og hvítur sykur og ótrúlegt að fólk komist upp með að halda því fram að hann sé hollari, en því miður er auðvelt að plata neytendur á fölskum forsendum," segir Jói og áréttar að agave-síróp sé í engu skárri lausn.

"Agave-síróp er mikið unnin vara úr agave-plöntu. Það samanstendur aðallega af ávaxta- og þrúgusykri, en í þær sykrur brotnar einmitt hvítur sykur í líkamanum. Agave-síróp hækkar blóðsykur hægar, en á endanum virkar það á sama hátt fyrir líkamann. Því er alls ekki hollara að neyta agave-síróps eða hrásykurs, og sé verið að hugsa um hollari sykur en hvítan sykur, þá er hann ekki til."

Jói segir sama eiga við þegar fullyrt er um heilsubót speltis umfram hveiti. "Munur á venjulegu hveiti og spelti er nánast enginn sé litið er á næringarinnihald. Spelt er hægþroska, aðeins hægt að nýta um 60% korns þess og þar af leiðandi er það allt að helmingi dýrara en venjulegt hveitikorn. Næringarinnihald og hollusta er hins vegar sú sama, hvort sem kornin eru lífrænt ræktuð eður ei, því álíka mikið glúten er í báðum korntegundum og í sumum mælingum er meira glúten í spelthveiti," segir Jói og vísar í næringartöflu sem fylgir greininni.

"Korn er ýmist malað í fínt eða gróft mjöl, en líka malað í heilkorn sem er næringarríkast. Við mölun missir fínna korn meira af vítamínum og steinefnum, en brauð sem er bakað úr heilkorni, sykurlaust og með ferskum, góðum súr er afar næringar- og trefjaríkt og einhver hollasta kornvara sem völ er á, en flest þurfum við að bæta við grófu korni og heilkorni í fæðu okkar," segir Jói og ítrekar að eini munur á venjulegu hveiti og spelti sé sá að spelt sé helmingi dýrara.

"Því er neytendum sagt ósatt þegar þeim er talin trú um að brauð þeirra verði hollara úr spelti. Þá hafa margar rannsóknir sýnt að lífrænt ræktaður matur er ekki hollari þegar litið er eingöngu á næringarinnihald," segir Jói.

"Öll þörfnumst við orku svo líkaminn komist vel frá amstri dagsins og æskilegt að 60% hennar komi úr kolvetnum. Gróf, sykurlaus brauð gefa góða orku, innihalda mikið af trefjum, vítamínum og steinefnum, og þá sama hvort borðað er brauð úr spelti eða hveitikorni. Allt er gott í hófi og farsælast að njóta alls sem lífið hefur upp á að bjóða."

17.01.2012 00:46

Ömmur og afar nauðsynleg

Ömmur og afar nauðsynleg þroska barna 

Rannsóknarmenn frá Sviss og Ástralíu hafa komist að því að ömmur og afar eru lykillinn að þroska barna.
Í rannsókninni kemur fram að gagnleg speki eldra fólks ásamt fjárhagslegum stuðningi sem þau veita hefur mikil áhrif á tilfinningalegan þroska barna.

Ást þeirra og hæfileiki til að hlusta á vandamál ungs fólks stuðlar síðan að aukinni sjálfsbjargarviðleitni.
Niðurstaða rannsóknarinnar gefur til kynna að afar og ömmur virka eins og stuðpúði á ungt fólk. Ungt fólk sem gengur í gegnum erfiðleika eins og skilnað foreldra eiga mun auðveldara með að vinna úr sorginni ef afar og ömmur eru virkir þátttakendur í lífi þeirra.
Vísindamennirnir tóku saman rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið víðsvegar um heiminn.
Það væri því kannski ágætt að hringja öðru hvoru í gamla settið..

þau stuðla að áframhaldandi þroska tegundarinnar.

 Vísir 16.1.2012

Ég tek alveg undir þessa rannsókn.. ég get ekki séð fyrir mér æskuár mín án ömmu og afa.. og það tvö sett.. sem höfðu mikil áhrif á minn þroska  emoticon

14.01.2012 14:22

Góð heilræði

Þessi heilræði eru rétt og góð og ætti að hafa þau prentuð upp á vegg þar sem við sjáum þau alla daga: 
1. Lífið er ekki sanngjarnt..  En það er samt ljúft.
2. Þegar þú ert í vafa..  Taktu þá bara lítið skref.
3. Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern.
4. Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur). Vinir þínir og fjölskylda 
munu gera það.  Vertu því í sambandi við þau. 

5. Greiddu kreditkortareikninginn þinn í hverjum mánuði.

6. Þú þarft ekki að vinna öll deilumál..  Samþykktu að vera ósammála.
7. Gráttu með einhverjum..  Það er betra en að gráta einn.
8. Það er allt í lagi að reiðast út í guð..   Hann þolir það
9. Safnaðu fyrir elliárunum og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum.
10. Þegar kemur að súkkulaði..  þá er mótstaða árangurslaus.
11. Semdu frið við fortíðina.. Þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina.
12. Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta.
13. Berðu ekki þitt líf saman við annarra..  Þú hefur ekki hugmynd um hvernig 

     þeirra líf er.
14. Ef samband þarf að vera leynilegt.. Þá áttu ekki að vera í því.
15. Allt getur breyst á augabragði..  En hafðu ekki áhyggjur.
16. Dragðu andann djúpt að þér..  Það róar hugann.
17. Losaðu þig við allt sem ekki er nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt.
18. Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari.
19. Það er aldrei of seint að hafa skemmtilega barnæsku.

     En sú seinni er alveg undir þér komin og engum öðrum.
20. Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei NEI sem svar.
21. Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin.
     Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni.. Í dag er sérstakt tilefni.
22. Undirbúðu þig ávallt vel..  Láttu svo strauminn taka þig.
23. Vertu óvenjuleg(ur) í dag.. Bíddu ekki eftir gamals aldri til > að klæða þig í fjólubláan lit !
24. Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn.
25. Enginn ræður yfir hamingju þinni nema þú.
26. Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum..

     "Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár" ?
27. Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi.
28. Fyrirgefðu öðrum allt.
29. Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki við.
30. Tíminn læknar svo til allt..   Gefðu tímanum tíma.
31. Hversu gott eða slæmt sem ástandið er..  Þá mun það breytast.
32. Taktu þig ekki of hátíðlega..  Enginn annar gerir það.
33. Trúðu á kraftaverk.
34. Guð elskar þig vegna þess hver hann er..  Ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki.
35. Endurskoðaðu ekki lífið..  Vertu til staðar og taktu þátt í því.
36. Að verða gamall er betra en hinn kosturinn..  Að deyja ungur.
37. Börnin þín fá bara eina barnæsku.
38. Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað.
39. Farðu út á hverjum degi..  Kraftaverk bíða alls staðar.
40. Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna..  

     þá myndum við hrifsa okkar til baka.
41. Öfund er tímasóun..  Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast.
42. Það besta er ef til vill einnig ókomið.
43. Það skiptir ekki máli hvernig þér líður..  Farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig.
44. Láttu undan.
45. Lífið er ekki skreytt með slaufum..  en samt er það gjöf.

30.10.2011 19:23

Einelti

Þessi saga er á netinu og getur alveg verið er sönn.. Góð er hún allavega.. Hvernig væri nú að kennarar tækju smá tíma í að framkvæma þetta verkefni.. 
Pappírsbúturinn sem notaður er getur varla sett skólastarfið á hausinn.. 
Kennari í New York var að kenna bekknum um einelti og lét þau framkvæma smá æfingu. Hún fékk börnunum pappírsbút og sagði þeim að hnoða og kuðla og trampa svo á kuðlinu.. og skemma eins og þau gætu, bara ekki að rífa niður. Svo lét hún börnin breiða úr pappírnum og prófa að slétta krumpurnar, en ekki síst, virða fyrir sér hvernig þau hefðu skemmt pappírinn og gera sér grein fyrir hvað hann var orðinn óhreinn. Síðan sagði kennarinn börnunum að biðja pappírinn afsökunar. Hversu mikið sem börnin báðu pappírinn afsökunar og reyndu að laga það sem þau hefðu krumpað og óhreinkað, þá hurfu skemmdirnar ekki. 
Kennarinn fékk börnin til að ræða og skilja að hvað sem þau reyndu eða vildu slétta og laga það sem þau hefðu gert við pappírinn, myndi aldrei lagast og búið væri að skemma pappírinn varanlega.. 
Þetta væri einmitt það sem gerðist þegar einelti væri beitt gegn öðrum. Hversu oft sem gerandinn bæði fórnarlambið afsökunar, þá væru örin komin til að vera og fylgja fórnarlömbunum allt þeirra líf. Upplitið á börnunum í bekknum sagði kennurunum að hún hafði hitt í mark. 

22.09.2011 12:50

Góð ráð einkaþjálfara

Viltu grennast án þess að fara í ræktina eða velta þér um of upp úr mataræðinu? Þá er einkaþjálfarinn James Duigan með svarið fyrir þig. Duigan er með þeim frægari í bransanum en meðal viðskiptavina hans eru ofurkroppurinn Elle Mcpherson og Rosie Huntington-Whiteley.

Samkvæmt nýlegri rannsókn er þetta ekki endilega spurning um hvað þú borðar heldur hvernig. Hér fyrir neðan er listi sem tekinn var saman af téðum James Duigan og næringarfræðingunum Marlyn Glenville og Kim Pearson fyrir dagblaðið Daily Mail.

Einbeittu þér að því að tyggja

Rannsóknir sýna að því lengur sem þú tyggur, því færri hitaeiningar borðar þú. Það tekur heilann tuttugu mínútur að fá skilaboðin um að maginn sé fullur. Á þessum mínútum eru því óþarfa hitaeiningar borðaðar.

Borðaðu innan klukkustundar frá því að þú vaknar

Sérfræðingar eru sammála um að morgunverðurinn sé mikilvægasta máltíð dagsins og að fólk sem borðar morgunverð sé yfirlétt grennra, léttara og sæki síður í óhollustu milli mála.

Einbeittu þér að matnum

Rannsóknir sýna að ef þú ert upptekinn við allt annað en að borða þá fær heilinn misvísandi skilaboð um það magn sem hann hefur innbyrt. Einbeittu þér því að matnum og borðaðu hægt.

Ekki ofelda matinn

Gættu þess vel að ofelda ekki matinn þar sem dýrmæt næringarefni geta skemmst.

Borðaðu fyrst ávöxt

Ávextir innihalda einfaldar sykrur sem meltast hratt. Sérfræðingar vilja meina að ef  ávaxta er neytt í lok máltíðar hægi það á meltingunni og sykrurnar staldri lengur við í meltingarkerfinu en þurfa þykir, sem er ekki gott. Muna því að borða áður en flóknari fæðu er neytt.

Ekki borða eftir klukkan átta á kvöldin

Ef að búið er að neyta góðrar fæðu með reglulegu millibili yfir daginn þarf ekki að borða eftir átta á kvöldin. Slíkt er óþarfi og fitandi.

Borðaðu minna þegar þú ert undir álagi

Þegar álagi er mikið fer orkan í allt annað en að melta mat. Því á að draga úr áti þegar stressið er mikið þar sem þú ert líklegri til að fitna við þær aðstæður.

Skerðu matinn í bita

Nýleg könnun leiddi í ljós að fólk sem sker matinn í bita borðar að meðaltali 20% færri hitaeiningar en þeir sem borða sama mat óskorinn. Er skurðurinn talinn valda því að viðkomandi er meðvitaðri um hvað hann er að borða, hversu mikið er verið að borða og meltingin fær meiri tíma til að vinna næringuna úr fæðunni.

Borðaðu oft og lítið í senn

Annars gæti líkaminn haldið að hann væri að svelta og neitað að brenna dýrmætar hitaeiningar. Án gríns. Flestir sérfræðingar eru sammála um gildi þess að borða oft og lítið í senn.

Heimild: Daily Mail 

06.09.2011 16:42

Gamla fólkið í dag.

Hvernig við förum með gamla fólkið í dag.

Lausnin:  Setjum gamla fólkið í fangelsi og glæpamenn á elliheimili!. Þá fengi gamla fólkið aðgang að baði, tölvu, sjónvarpi, líkamsrækt og gönguferðum. Allt starfsfólk talaði íslensku við það og enginn stæli frá þeim. Þeir sem vildu gætu stundað nám, smá vinnu, eða dútlað við föndur og gamla fólkið fengi greitt í stað þess að þurfa að borga háan hluta af ellilífeyrinum sínum. Bubbi Morthens og Ari Eldjárn kæmu svo til að skemmta á aðfangadag!

Glæpamennirnir fengju þá kaldan mat, engan pening, væru aleinir, starfsfólkið talaði allt að 10 ólík tungumál og enga íslensku, þeir þyrftu að slökkva ljósin kl. 20 og fengju að fara í bað einu sinni í viku. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur kæmu til að skemmta þeim á sjómannadaginn. Látið þetta ganga ef ykkur finnst að ellilífeyrisþegar eigi betra skilið! 


15.03.2011 01:14

Hugleiðing

Það þarf mjög lítið til að láta aðra vita að við sjáum, heyrum, skiljum og okkur þykir vænt um þá. Góðleg og glettileg augu, eitt lítið vink og vingjarnlegt bros er allt sem þarf til. 

15.02.2011 00:36

Viðbót við fyrri grein.

Vil geta þess að hin yndislega Eydís Valgarðsdóttir sjúkraþjálfari á Eflingu hefur sérhæft sig í meðferð og leikfimi fyrir vefjagiktarsjúklinga og það er frábært að hafa komist í meðferð hjá henni. Ég er í leikfiminni núna og það er í fyrsta skiptið í mörg ár sem leikfimi gerir mér gott og mér líður vel með.  Einnig er Sigrún Jónsdóttir í Eflingu líka mjög góð í nuddi og heilun fyrir okkur. 

14.02.2011 20:07

Þinn Ósýnilegi Óvinur.

 Ég heiti Fibromyalgia.  Ég er Ósýnilegur Krónískur sjúkdómur og ég er nú þinn fylgisveinn til æviloka. Aðrir í kringum þig geta hvorki séð eða heyrt mig, en ÞINN kroppur finnur fyrir mér. Ég get ráðist á þig hvar, hvenær og hvernig sem ég vil. Ég get valdið þér ómældum sársauka eða, ef ég er í góðu skapi, þá gefið þér verki allstaðar. Ég man þegar þú og Orka fluguð saman útum allt og höfðuð það flott. Ég tók orkuna frá þér og gaf þer magnleysi í staðinn.  Reyndu að hafa það flott núna !

Ég tók jafnvel Góðan Svefn frá þér og skipti á honum og Fibro-myrkri. Ég get fengið þig til að titra innvortis, eða fengið þig til að frjósa eða svitna meðan öðrum líður vel.

Ójá.. Ég gert valdið þér kvíða eða þunglyndi líka. Ef þú ert búin að plana eitthvað, eða hlakkar til spennandi dags, get ég tekið það frá þér. Þú baðst ekki um mig, ég valdi þig af ólíkum ástæðum, t.d. útaf vírusnum, sem þú losnaðir aldrei við, eða útaf bílslysinu, eða var það kannski útaf árinu, sem þú brotnaðir saman útaf álagi ? Hvað svo sem það var þá ég er komin til að vera. Ég heyrði að þú værir að hugsa um að fara til læknis til að reyna að losna við mig. Ég míg á mig af hlátri. Reyndu það bara. Þú neyðist til að fara til margra lækna áður en þú finnur einhvern sem getur hjálpað þér á einhvern máta. Þú kemur til með að fá endalausar verkjatöflur, svefntöflur, orkupillur, þú færð að heyra að þú þjáist af þunglyndi og eða kvíða, mælt er með að þú prófir geðlyf, farir í nudd, verður sagt að ef þú sefur og æfir reglulega komi ég til með að hverfa, sagt að hugsa jákvætt, öðruvísi, mönuð til að rífa þig upp, og HELST AF ÖLLU, það verður aldrei tekið mark á því þegar þú segir hvernig þér líður þegar þú kvartar við læknana um hve orkulaus þú sért hvern einasta dag. Fjölskyldan þín, vinirnir, og vinnufélagarnir munu hlusta á þig þangað til þeir þreytast á að heyra hvernig ég fæ þér til að líða og hversu orkudrepandi sjúkdómur ég sé. Hluti af þeim kemur til segja hluti eins og "Hva, þú átt bara lásí dag í dag eins og fleiri!" eða " jájá, ég veit veit að þú getur ekki gert það sem þú gast fyrir 20 ÁRUM" án þess að heyra að þú sagðir eiginlega fyrir 20 DÖGUM.. Einhverjir byrja að baktala þig á meðan þú smám saman ferð að sjá að þú ert á góðri leið með að missa alla virðingu við að reyna að fá þá til að skilja. Sérstaklega þegar þú ert í miðjum samræðum við "normal" manneskju og gleymir hvað þú ætlaðir að segja. Svona til að enda þetta! (Ég vonaðist til að geta haldið þessum hluta leyndum en ég held að þú sért búin að komast að því). 

Eini staðurinn þar sem þú getur fengið stuðning eða skilning frá varðandi mig.. 

ER HJÁ ÖÐRUM MANNESKJUM MEÐ FIBROMYALGIA (vefjagigt). 

Þinn Æruverðugi Ósýnilegi Króníski Sjúkdómur. 

Þessi texti er þýddur úr sænskum pistli og ég afritaði hann og límdi án þess að bæta eða breyta neinu.   Kveðja Helga J. Andrésdóttir (setti inn á Facebook) 



14.09.2010 12:24

Þunglyndi

Ég ætla að leyfa mér að setja inn link að síðu sem ung kona, sem ég kannaðist við (en þó kynntist ég meira foreldrum hennar árin áður en þau skildu), skrifar um lífsreynslu sína.

http://nurseimba.posterous.com/ 

Ég hef sjálf kynnst þunglyndi og barðist við það í nokkur ár og ég veit að ég ætla ekki þangað aftur. Það er alltaf vinna í sjálfum sér og á meðan verðum við sjálfselsk og dofin og hrindum tilfinningum frá okkur því það er ákaflega erfitt að eiga við allar tilfinningar þegar við erum þunglynd.
En ég er þakklát fyrir þessa reynslu sem ég hef í dag og lífið sem ég lifi núna en enn er ég mjög viðkvæm fyrir öllu áreyti og forðast það eins og ég get svo að ég reyni að hafa lífið sem ánægjulegast og hrindi frá mér öllu óþægilegu eins og ég get.
Auðvitað getum við ekki forðast allar óþægilegar uppákomur og ég er líka misjafnlega upplögð og þá þarf bara að reyna að taka á því á hverjum tíma og enn nota ég þá aðferð að draga mig í hlé ef mér finnst umhverfið ógnandi. 

Eitt stendur þó alltaf uppúr; ég forðast fólk sem reiðist auðveldlega og er oft reitt og veit jafnvel ekki af hverju það er reitt en hefur sig ekki í að vinna í sínum málum.
Eða jafnvel veit ekki að það sé svona reitt inni í sér.

Ég lærði það á sjálfstyrkingarnámskeiði að við reiðumst oftast þegar við getum ekki stjórnað.
Hvort sem það eru aðstæður sem við ráðum ekki yfir eða einhver er ekki nógu meðfærilegur að okkar mati, þá verðum við reið af því að við ráðum ekki og getum ekki stjórnað. 
Eða jafnvel þegar við erum svo þröngsýn að við viljum ekki heyra annarra skoðanir og teljum okkar álit vera best. 
 
Til er gott spakmæli sem segir: Sannleikanum er hver sárreiðastur.


Flettingar í dag: 59
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 235255
Samtals gestir: 26500
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:28:21

Nafn:

Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Afmælisdagur:

14. júní

Staðsetning:

Eyjafjörður

Faðir:

Þorsteinn Marinósson

Móðir:

Fjóla Kristín Jóhannsdóttir

Um:

Velkomin á síðuna mína.

Eldra efni

Tenglar