16.12.2008 00:52
Húsmæður í og við Eyjafjörð fóru í aðventuferð í Mývatnssveit 29. - 30. nóv. og var það vel lukkuð og skemmtileg ferð.
www.123.is/orlofey Það er síðan sem Orlof húsmæðra í Eyjafirði hefur komið sér upp.
06.11.2008 00:02
Orlofsnefnd húsmæðra í Eyjafirði hefur komið sér upp heimasíðu á netinu og er slóðin á síðuna:
www.123.is/orlofey
Þar verða settar inn myndir úr orlofsferðum og upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir og annað tilfallandi.
23.06.2008 23:38
Orlofsferð húsmæðra í Eyjafirði 22. júní 2008 var að þessu sinni menningarferð á Akureyri sem hófst með morgunmat á KEA.
Síðan var farið í gallerí og vinnustofur, sýningar og söfn. Síðdegis fórum við um borð í Húna og sigldum við til Hjalteyrar.
Borðuðum þar forréttinn og svo var grillað um borð í Húna og borðað og dansað við harmonikkuspil Núma.