Stefán Daníel Svanlaugsson var fermdur annan í pákum í Grensáskirkju og var okkur boðið í ferminguna.
Myndir úr fermingunni eru komnar á myndasíðuna mína.
Við pabbi fengum far með Manna og Indu suður um páskana.
Við fengum lánaðan bíl hjá Einari og Lindu og skruppum í nokkrar heimsóknir, svo helgin nýttist okkur vel.
Gistum fyrri nóttina hjá Ásu og fórum svo í Njarðvík til Ingu á páskadag þar sem okkur var boðið í mat ásamt Manna og Indu og gistum síðan þar síðari nóttina. Inga lánaði okkur bílinn sinn til að við pabbi kæmumst í kirkjuna kl. 11 og notuðum við tækifærið og heimsóttum Fjólu Ósk í nýju íbúðina hennar. Ég er mjög ánægð eftir þessa skemmtilegu ferð með fólkinu mínu.
Svo styttist í að við Fúsi förum til Svíþjóðar í heimsókn til Valgeirs og fjölskyldu. Eigum flug út 15. maí og vonum að það verði ekkert vesen s.s. verkfall og þess háttar tafir.