Hvernig við förum með gamla fólkið í dag.
Lausnin:
Setjum gamla fólkið í fangelsi og glæpamenn á elliheimili!. Þá fengi
gamla fólkið aðgang að baði, tölvu, sjónvarpi, líkamsrækt og gönguferðum. Allt
starfsfólk talaði íslensku við það og enginn stæli frá þeim. Þeir sem vildu
gætu stundað nám, smá vinnu, eða dútlað við föndur og gamla fólkið fengi greitt
í stað þess að þurfa að borga háan hluta af ellilífeyrinum sínum. Bubbi
Morthens og Ari Eldjárn kæmu svo til að skemmta á aðfangadag!
Glæpamennirnir fengju þá kaldan mat, engan
pening, væru aleinir, starfsfólkið talaði allt að 10 ólík tungumál og enga
íslensku, þeir þyrftu að slökkva ljósin kl. 20 og fengju að fara í bað einu
sinni í viku. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur kæmu til að skemmta þeim á
sjómannadaginn. Látið þetta ganga ef
ykkur finnst að ellilífeyrisþegar eigi betra skilið!