Fór í gærkvöld á sykurmassa/fondant námskeið í Skjaldarvík.
Gaman að sjá hvað þessi ungu hjón eru búin að gera fínt hótel í Skjaldarvík og það var sniðugt hjá Hildi að halda svona námskeið þarna og konur á ýmsum aldri skemmtu sér við að skreyta með sykurmassa og þemað var jólin.
Myndir af kökunum sem voru skreyttar (frumraun hjá flestum) eru komnar inn.. og getraun: Hver þeirra er kakan mín?...