Þá er veiðiferðin hafin hjá Flökkurum og nú er vel mætt eða um 63 bílar og er það met í veiðiferð. Í kvöld léku Mundi og Kiddi fyrir dansi og var ósköp gott að hreyfa fæturnar í dansinum aftur.
Annað kvöld verður svo ball með Stúlla og Dúa hér í Ljósvetningabúð og von á enn fleiri bílum þá.
Það rættist úr veðrinu í dag og sólin skein um og eftir hádegið þegar ég var í vinnunni, en nú er svalt u.þ.b. 2-3 °C en við höfum núna gasofn svo það fer vel um okkur í útilegunni.