Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

29.03.2010 03:09

Kynlífið...

Stúlka nokkur bauð kærastanum sínum að koma á föstudagskvöldi til að hitta foreldra sína fyrsta sinni og borða með þeim kvöldverð.
Þar sem þetta var stór stund, þá tilkynnti hún kærastanum að eftir kvöldverðinn langaði hana til að fara eitthvað og eiga með honum kynlíf í fyrsta sinn.  
Kærastinn varð upprifinn af tilhlökkun og spenningi, en hann hafði fram að þessu aldrei stundað kynlíf.

Hann sig íapótekið til að ná sér í verjur. Hann sagði lyfsalanum að þetta yrði fyrsta skiptið hans í kynlífi. Lyfsalinn tók ljúflega á móti honum og í nærri heila klukkustund leiddi hann strákinn í allan sannleik um kynlíf og getnaðarvarnir.  Við sjóðsvélina spurði lyfsalinn strákinn hversu margar verjur hann vildi kaupa. Hægt var að kaupa öskjur með þremur eða 10 verjum nú eða þá fjölskylduöskjuna stóru.   Strákurinn kvaðst endilega vilja kaupa fjölskylduöskjuna þar sem hann ætlaði sér að taka til óspilltra málanna enda taldi hann að þau myndu ekki draga neitt af sér - enda í fyrsta sinni að þessu og svona. Sama kvöldið kom kærastinn að húsi foreldra stúlkunnar og hitti fyrir kærustuna í anddyrinu.
"Ó ég er svo spennt fyrir að þú hittir foreldra mína - komdu inn ! " Sagði kærastan.  

Stráksi gekk inn og var hann leiddur rakleiðis að kvöldverðarborðinu þar sem foreldrar kærustunnar sátu þá þegar.  Kærastinn bauðst þegar í stað til að fara með borðbænina og laut strax höfði. Heil mínuta leið og stráksi var enn niðurlútur í djúpri bæn. 10 mínútur liðu enn og enn breyttist ekkert hjá kærastanum og hann hélt áfram við bænina.
Loks þegar 20 mínútur voru liðnar með stráksa niðurlútan í bæninni þá hallaði kærastan sér að eyra hans og hvíslaði að honum
: "Ég hafði ekki hugmynd um að þú værir svona trúaður"  
Stráksi sneri sér að kærustunni og hvíslaði að henni : "Ég hafði ekki hugmynd um að pabbi þinn væri lyfsali" 

Flettingar í dag: 1074
Gestir í dag: 236
Flettingar í gær: 109
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 236270
Samtals gestir: 26714
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 14:22:50

Nafn:

Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir

Afmælisdagur:

14. júní

Staðsetning:

Eyjafjörður

Faðir:

Þorsteinn Marinósson

Móðir:

Fjóla Kristín Jóhannsdóttir

Um:

Velkomin á síðuna mína.

Eldra efni

Tenglar