24.06.2009 00:13
Þessar konur
Ég var á leiðinni í vinnuna í morgun þegar ég leit
yfir á hina akreinina og sá þá konu í glænýjum Subaru á 90 kílómetra
hraða með andlitið klesst upp við baksýnisspegilinn að reyna að draga
"ælæner" í kringum augun á sér! Ég horfði frá henni í nokkrar sekúndur
en þegar ég leit á hana aftur var hún komin hálfa leið inn á mína
akrein og enn að reyna að mála sig.
Mér brá svo hrottalega að ég
missti rafmagnsrakvélina mína og hún sló kleinuhringinn úr hinni
hendinni á mér. Í látunum við það að rétta bílinn minn af með hnjánum á
stýrinu datt farsíminn af eyranu á mér ofan í kaffibollann sem ég var
með á milli læranna og við það missti ég samband við mikilvægan
viðskiptavin.
Þessar konur kunna ekkert að keyra!