Tillögu til þingsáyktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar var dreift á Alþingi í dag.
Flutningsmenn tillögunnar eru Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokksins og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.
Þar segir: Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið fyrir 31. desember og efnt til almennra þingkosninga í framhaldinu.
Sko !
Steingrímur ¨afi¨ Sigfússon er skólabróðir minn og Valgerður er fyrrverandi kærasta móðurbróður míns.
Ég held bara að ég verði að styðja þau
Annars vildi ég nú sjá góða menn í þjóðstjórn sem hafa menntun og reynslu, ekki bara pólitíkusa og framapotara sem skaffa sínum persónulegu vinum vel launaða vinnu.