Sigrún Jóhanna Þorsteinsdóttir |
|
04.10.2008 02:01BankarnirÞað kostar að
bjarga bönkunum frá snörunni Eftir Guðbjörn Guðbjörnsson Lífeyrissjóðirnir
eru að mínu mati heilagir og inneignir í þeim ætti því ekki að snerta til
að eyða í einhverjar áhættufjárfestingar. Fjárfestingar í íslenskum
fjárglæfrafyrirtækjum eða bönkum, sem eru á barmi gjaldþrots teljast til
slíkra áhættufjárfestinga. Á móti koma
þau sjónarmið, að hér á landi sé allt á heljarþröm. Atvinnulífið sé
að stöðvast og gífurlegt atvinnuleysi blasi við. Verðbólgan sé á leiðinni
í 20% og allir bankarnir séu leiðinni á hausinn. Verðbólgan undanfarna
mánuði hefur gert það að verkum að verðtryggð lán hafa hækkað mikið og
ekkert lát er á þeim hækkunum á næstunni. Vegna falls krónunnar hafa lán
tekin í erlendri mynt einnig hækkað um tugi prósenta á nokkrum mánuðum.
Almenningur er ráðþrota og á barmi örvæntingar. Illskásta
lausnin er því líklega að lífeyrissjóðirnir hjálpi til við lausn mála. Tryggja
verður að þeim fjármunum verði ekki fórnað af þeim sem komið hafa þjóðinni á
hausinn - sjálftökuliðinu. Til að almennt launafólk og lífeyrisþegar samþykki
slíkar ráðstafanir er eðlilegt að umbunin sé ríkuleg. Eðlilegt er að bankarnir
skipti um eigendur og fari í hendur þeirra, sem björguðu þeim. Þeir sem eru að
bjarga bönkunum eru þeir sömu og borgað hafa okurvexti á verðtryggðum
lánum eða sitja uppi með lán í erlendri mynt sem hækkað hafa gífurlega í
íslenskum krónum. Samúð almennings er skiljanlega minni en engin. Með öllum
ráðum verður að tryggja efnahagslegan stöðugleika í landinu og að
slíkar hörmunar dynji ekki aftur á þjóðinni. Það verður að mínu
mati aðeins gert með einu móti: aðild að ESB og upptöku
evru. Samtök atvinnulífsins og samtök launamanna eiga ekki sætta
sig við neina aðra lausn en að framan getur. Stjórnmálamenn allra
flokka verða loksins að leggja við hlustirnar, að öðrum kosti verður að
skipta þeim sem ekki hlusta út fyrir þá sem kunna að hlusta á þjóð sína. AthugasemdirVegna þess að lífeyrissjóðirninr eru "heilagir" eins og þú orðar það vel, -þetta er jú ævisparnaður launþega-, eru lögin um lífeyrissjóði mjög ströng. Lífeyrissjóðir hafa ekki "áhættufrelsi" eins og flestir aðrir fjárfestar. Ég sé ekkert sem getur teimt þessa peninga "heim" nema ríkistryggð skuldabréf. En hversvegna er aðeins talað um eignir lífeyrissjóðanna í þessu sambandi, hvað með eignir bankanna, stórfyrirtækjanna, auðmannanna.....???? sigurvin (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 01:08 Sigrún: Leyfi mér að birta þetta blogg vegna þess að ég er sammála Guðbirni og líka Sigurvini sem gerir athugasemd. Skrifað af SigrJoh Flettingar í dag: 618 Gestir í dag: 185 Flettingar í gær: 109 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 235814 Samtals gestir: 26663 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 13:40:38 |
Nafn: Sigrún Jóhanna ÞorsteinsdóttirTölvupóstfang: brunahlid8@hotmail.comAfmælisdagur: 14. júníStaðsetning: EyjafjörðurFaðir: Þorsteinn MarinóssonMóðir: Fjóla Kristín JóhannsdóttirUm: Velkomin á síðuna mína.Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is