22.06.2008 00:59
Nokkrar nýlegar myndir komnar inn.
Fórum í fyrstu útilegu sumarsins á F 215 og F 222 í Heiðarbæ í Reykjahverfi. Þar voru u.þ.b. 50 bílar og góður andi að vanda hjá Flökkurum.
Þaðan fórum við til Húsavíkur á sunnudeginum og heimsóttum Stellu og fjölskyldu og Eva og Anna komu með okkur í Lystigarðinn þar með brauð handa öndunum, en Ásgarðsvegur 11 þar sem þær búa er þar rétt hjá.
Einnig setti ég inn myndir frá 17. júní og myndir af Einari Þóri og Lindu Björk sem varð stúdent frá MA.