24.05.2008 13:38
Starfsmenn Sandblásturs og Málmhúðunar fóru á Kaffi Jónsson í gærkvöld til að fara í keilu. Mér var að sjálfsögðu boðið með eins og öðrum mökum þeirra.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég prófa þennan leik og mér fannst gaman þó svo að árangurinn væri svona upp og ofan.
Myndavélin varð því miður eftir heima svo engar myndir voru teknar af þessum atburði.