12.05.2008 23:14
Ég gaf manninum mínum tvo miða á "Yfirliðsbræður" í afmælisgjöf þann 10. maí og að sjálfsðgðu bauð hann mér með sér á skemmtunina með þeim í KA heimilinu í kvöld.
Þetta var hin besta skemmtun hjá þeim Erni Árnasyni og Óskari Péturssyni með Jónasi Þóri undirleikara og var svo til fullt hús.
Yndælisveður var í dag og fór hitinn hátt í 20° C þó að ekki væri mikið sólskin og vorum við svolitla stund úti í garðinum að hreinsa til.
Þar er allt að lifna við eftir vetrardvalann og fyrstu blómin að taka vi sér.
Annars er ekki mikið af blómum komið í garðinn og ég þarf að fara að láta verða af því að heimsækja Sillu í Fornhaga og fá mér nokkur blóm.