06.02.2008 23:47
Tók nokkrar góðar vetrarmyndir í dag. Fallegt veður þó að það hafi verið svolítið kalt í dag.
Þessi snjór fær sennilega ekki að vera í friði því að spáin er ekki of góð. Gæti orðið hvasst þó að það eigi að vera besta veðrið hér á norðausturlandi, en það er það svæði sem við fylgjum oftast í veðurspánum.
Annars komst ég heim að húsi á jeppanum áður en mokað var. Flestir höfðu skilið bílana eftir niður á vegi, en það er nú nauðsynlegt að vera á fjórhjóladrifsbíl hér ef maður ætlar að komast heim að húsi á veturna þegar er snjór og hálka.